Viltu vinna með okkur?
Eftirfarandi stöður eru í boði. Ef þú heldur að við séum að leita að þér hafðu samband við okkur á netfangið [email protected]
Hugbúnaðarsérfræðingur
Payday leitar að lausnamiðaðri manneskju sem brennur fyrir forritun og hugbúnaðarþróun til að slást í hóp öflugs teymisforritara sem þjónustar viðskiptavini Payday.
Við leitum að manneskju sem er fljót að tileinka sér nýja þekkingu og aðferðir, hefur gagnrýna hugsun og ríka þjónustulund.
Helstu verkefni
- Taka þátt í að þróa, útfæra, forrita og prófa lausnir Payday.
- Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar.
- Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs.
- Önnur verkefni eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur
- Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Marktæk reynsla og þekking af hugbúnaðarþróun.
- Geta til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.
- Þekking og reynsla af NET Core/C# og MSSQL er nauðsynleg.
- Þekking og reynsla af GIT, Azure, React, PHP og OAuth er kostur.